|
Tölvuorðabókin |
|
Kaupa Tölvuorðabókina |
Smelltu hér til að kaupa Tölvuorðabókina.
Ef þú hefur keypt Tölvuorðabókina 2008 eða nýrri skaltu smella hér til að fara í innskráningu.
|
|
Um nýjustu útgáfur |
|
Um allra nýjustu útgáfu Tölvuorðabókarinnar. Lesa nánar hér.
|
|
Yfirlit yfir eldri útgáfur Tölvuorðabókarinnar. Lesa nánar hér.
|
|
Kynning |
|
Tölvuorðabókin er orðabókarforrit fyrir Microsoft Windows. Hún er mjög vönduð, enda byggir hún á traustum grunni. Hún hefur að geyma ensk-íslenska, íslensk-enska, dansk-íslenska og íslensk-danska orðabók, auk Stafsetningarorðabókar. Tölvuorðabókin kom fyrst út undir nafninu Orðabók Aldamóta árið 1993 og ruddi þá brautina í notkun rafrænna orðabóka á Íslandi. Hefur hún verið í stöðugri þróun síðan. Grunnútliti hefur þó ekki verið breytt. Er eftir fremsta megni unnið að því að bæta hana án þess að notendur þurfi að læra á nýtt viðmót. Einnig er þess vandlega gætt að þau orðasöfn sem notendur hafa keypt í gegnum tíðina verði áfram tiltæk, jafnvel þótt nýjum orðasöfnum sé bætt við. Tölvuorðabókin er samhæfð við nýjustu Windows-útgáfur og er hægt að nota hana í Windows XP, Windows Vista og Windows 7, 32 bita eða 64 bita útgáfum.
|
|
|
Uppsetning og notkun |
|
Tölvuorðabókin er sækjanleg gegnum Internetið. Stærð pakkans er um 18 MB og tekur 2-3 mínútur að sækja hann. Eftir að þú hefur sótt Tölvuorðabókina þarftu ekki Internet-tengingu til að nota hana. Einstaklingur sem kaupir Tölvuorðabókina getur sett hana inn á allt að 3 tölvur.
|
|
Verð |
|
Verðið á Tölvuorðabókinni er tvískipt; annars vegar kostar hún kr. 3.390 fyrir þá sem eiga eldri pakka af Tölvuorðabókinni fyrir eða eru áskrifendur að ordabok.is. Hins vegar kostar hún kr. 5.900 fyrir þá sem eru að kaupa í fyrsta sinn. Tölvuorðabókin er ekki seld með áskriftarfyrirkomulagi. Notkunin er ekki bundin við tiltekinn tíma, svo sem eitt ár, heldur er notandanum heimilt að nota hugbúnaðinn án tímatakmarkana. Fyrirtæki sem hafa áhuga á Tölvuorðabókinni fyrir fleiri en 3 notendur hafi samband í gegnum ordabok@ordabok.is.
|
|