Orðabók ordabok.is
   
|  Beygingar  |  Sagnir  |  Glósur  |  Vefleit  |  Valkostir  |  English  |  Um  |  Samband  |  Áskrift  |  Heim  |  |  Útskrá  |

Málfar 2008
Ný útgáfa - Málfar 2008
Komin er út ný útgáfa af Málfari og heitir hún Málfar 2008. Síðasta útgáfa kom á markað árið 2005 og hefur hún verið verulega betrumbætt. Sækja má Málfar 2008 hér.
Málfar
Hvað er í þessari útgáfu?
Í þessari útgáfu eru nokkrar aðaláherslur:

  1. Stækkun á ensk-íslenska og íslensk-enska orðasafninu. Bætt hefur verið 25.000 nýjum uppflettiorðum í hvort orðasafn frá því Málfar kom síðast út. Samtals er ensk-íslenska og íslensk-enska orðasafnið nú orðið um 155.000 uppflettiorð. Málfar notar bæði þessi orðasöfn í yfirlestri því það gerir ráð fyrir að enskur texti kunni að koma fyrir auk hins íslenska.
  2. Hugbúnaðurinn hefur nú verið endurskrifaður frá grunni og er orðinn mun vandaðri og öflugri. Hann greinir villur betur og kemur með betri tillögur en áður, auk þess sem hann þekkir nú miklu fleiri orð og orðasamsetningar. Málfar er ómissandi verkfæri fyrir þá sem vilja hafa Word-skjölin sín rétt stafsett.
  3. Málfar leggur nú minna álag á örgjörvann. Í eldri útgáfunni áttu fartölvur það til að setja viftuna í gang þegar leið á villulesturinn til að kæla kerfið en þetta er ekki vandamál í dag.
  4. Málfar hefur verið gert samhæft við Windows Vista og Microsoft Word 2007.
  5. Kominn er nýr uppfærslubúnaður inn í Málfar sem gerir því kleift að skoða sjálfvirkt hvort komin sé nú útgáfa og bjóða hana þá ef svo er. Þetta gerist á lipran og átakalausan hátt, og truflar ekki vinnufriðinn.